Wednesday, February 22, 2006
Að ná pointinu eða ekki

Jæja ég ætla að prófa þetta aðeins áfram og segja ykkur eina góða sögu sem ég varð vitni að síðasta sumar. Þessi saga segir frá dömu sem er ekki alveg að ná pointinu þegar samband er búið, þrátt fyrir að skilaboðin hafi verið skýr. Eins og venjulega þá er nöfnum breytt til að vernda einstaklinga. Parið sem um getur hafði verið saman í einhverja 4 mánuði og svona gengið upp og ofan. Stúlkan sem um getur var að vinna hjá tryggingafélagi síðast þegar ég vissi en strákurinn sem tryggingarsali hjá sama fyrirtæki. Ég ætla að kalla hana Elvu en hann gengur undir nafninu Rikki.

Rikki er voða fínn gaur sem hafði ekki verið í sambandi lengi og vorum við félagarnir mjög ánægðir með hann þegar hann náði sér í Elvu enda þar á ferð svaka skutla og fín stelpa. Elva var einhvernvegin alveg stelpan fyrir hann. Jæja einhverntíman þá var ég með Rikka á sportbar rétt fyrir leik og vorum við að ræða málin. Hann fer þá að segja mér frá því að hann sé ekki alveg að fíla þetta samband vegna þess að hún var orðin eitthvað of mikið að troða sér inn á hann. Hún var hálfpartinn flutt inn til hans og í stöðugu sambandi við hann þannig að honum fannst hann ekki vera nógu sjálfstæður. Hún var alltaf að ákveða hvað hann átti að gera hvert kvöld og um helgar. Vissulega höfðum við tekið eftir þessu að hann var ekki mikið með okkur en það var svona helst sem að við vorum með honum rétt þegar leikir væru í landsbankadeildinni.

Ég sagði honum svona aðeins að skoða málin og sjá hvað myndi gerast en svo kom að því að hann sprakk. Það var afmæli hjá einum af félögunum og hún ætlaði að banna honum að fara því hún hafði boðið vinkonum sínum og mökum í heimsókn og hann átti sko að vera heima fyrir. Við skulum muna að hann átti íbúðina og hún var farin að skipuleggja allt fyrir hann. Hann var ekki sáttur og fór út með okkur og urðu smá læti heima fyrir þetta kvöld. Á sunnudeginum þá sest hann niður með henni til að ræða málin.

"Elva, þetta gengur ekki lengur, ég er bara ekki að meika þetta samband lengur, mér finnst þetta bara ekki virka" "nú afhverju ekki?" spyr Elva, "mér finnst þetta bara vera of mikið stökk, ég meina þú ert flutt bara hérna inn, skipuleggur hluti án þess að tala við mig og mér finnst þetta bara of mikið" segir Rikki. "Ég skal hætta þessu, ég skal búa heima í einhvern tíma og við vinnum úr þessu" grætur Elva.

Eins og alltaf við svona sambandsslit þá koma tár og þetta reynir á persónur, sumir taka þessu bara misjafnlega. Í þessu tilfelli þá gekk Rikki beint til máls og sagði bara hreint út að þetta væri búið, hann vildi ekki þetta samband og sleit því. Það er nokkuð ljóst að þrátt fyrir tilraunir Elvu þá vildi hann bara ekki reyna að láta á þetta. En einhvernvegin fór það alveg framhjá Elvu. Hún misskyldi þetta einhvernvegin og er eftirfarandi dæmi um hvað gekk á eftir þetta.

Hér koma dæmi um hvað gekk á, setningar á borð við "hæ, hvað segirðu gott sæti" "ég var að spá í að vera með asískan mat í kvöld" "förum upp í bústað með Kollu og Bigga um helgina" "ég var að spá í að við myndum leigja mynd í kvöld og kúra yfir henni"

Þetta varð það slæmt að Rikki hætti að vinna hjá Tryggingarfélaginu, eftir að hafa rætt málin alvarlega við hana, hann skipti um númer og ekki nóg með það þá seldi hann íbúðina því honum fannst þetta minna sig of mikið á hana að búa þarna, hann býr núna annarsstaðar í Rvk, fékk sér aðra vinnu og ekki nóg með það þá fann hann sér aðra stelpu og viti menn hamingjan bara í góðum gír. Elva hefur ekki látið á sér kræla í góðan tíma og ekkert nema gott um það að segja enda PSYCHO BITCH FROM HELL þannig að ég segi bara "Stelpur, get the point þegar það á við"

Kveðja Höfundur

Posted at 10:46 pm by saekobitch
Comments (5)  

Sunday, January 22, 2006
Hnefahöggið

Góða kvöldið gott fólk og afsakið að ekki hafi komið inn saga síðustu helgi enda búið að vera nóg um að vera hjá mér. Jæja saga vikunnar kemur úr eigin reynslubanka en ekki hægt að segja að þetta sé mikil reynsla sem ég öðlaðist úr þessu, enda er þetta meira saga um hversu geðsjúkt fólk getur verið. Þetta átti sér stað í október á síðasta ári á ónefndum stað með ónefndu fólki.

Hún á sér stað á skemmtistað í Reykjavík, við vorum nokkrir félagar sem kíktum út og vorum á svona léttu bar-rölti og kíktum semsagt inn á einn staðinn. Þar hittum við fyrir kvennahóp þar sem voru kvennfólk á öllum aldri og var þetta svona vinnustaða djamm hjá þeim. Jæja þarna í hópnum voru semsagt meðal annars mæðgur. En svona til að við höfum það á hreinu þá gerði ég ekki beint eitthvað af mér. Jæja við setjumst þarna niður ég og félagar mínir og erum að spjalla við þær allar og er þetta áður en ég kemst að því að þarna væru mæðgur. Við erum öll að spjalla og tek ég svo lítið eftir einni dömunni þarna, nokkuð sæt stelpa og fer svona aðeins að spjalla við hana.

Jæja við förum síðan að dansa og vissulega komu einhverjir smá kossar þarna inn á milli en jæja á gólfið koma síðan félagi minn og önnur dama af borðinu sem var svona aðeins í eldir kanntinum, nokkuð heit dama og flott, jæja við erum síðan öll að dansa þarna í smá stund og svo kemur rólegt lag. Viti menn daman sem félagi minn var með ýtir honum að dömunni sem ég var með og þau fara að dansa á meðan hún kemur að dansa við mig.

Jújú gott og blessað sá ekkert að þessu þar sem að þetta var nú ekki svo alvarlegt en þá segir eldri daman við mig "Ég vildi fá að dansa við þig, þessvegna lét ég félaga þinn dansa við dóttur mína" og þið getið ímyndað ykkur viðbrögði, "HAAAAAAAAA, ert þú mamma hennar???" jæja ok ekkert mál við erum að dansa og ég tek eftir því að félagi minn og dóttirin eru að ná aðeins saman eða það hélt ég, og þá segir mamman "yes, djöfull líst mér vel á þetta, ég var að vona að dóttir mín myndi fíla hann" og þá hugsaði ég (dísús er mamman að pimpa út dóttur sína) en allavegana þá erum við að dansa þarna í smá stund og þá kyssir hún mig og hvað gerist.

Dóttirin kemur til okkar og ýtir okkur í sundur og spyr mig, "ef þér leist svona betur á mömmu mína afhverju sagðir þú það þá bara ekki" og ég vissi ekki alveg hvað ég átti að segja þannig að ég stóð og yppti öxlum, mér brá bara, en þá labbaði hún bara í burtu og fór að rífast við mömmu sína. Ég og félagi minn fórum nú bara á barinn og fengum okkur bjór og fylgdumst aðeins með þessu rifrildi. Þarna erum við bara 2 að horfa á þetta og hlæja að þessu og erum rétt við það að fara að líta undan og BAMMMMMMM dóttirin kýlir mömmu sína.

Okkur brá all svakalega en hlógum síðan dátt því þetta var svo fyndið og þá gengur dóttirin í átt til okkar og setur öxlina í mig og gengur framhjá mér. Var nú ekkert að kippa mér upp við það heldur hló bara áfram. En ég verð að segja að ég tel mig bara heppinn að hafa komist í burtu frá þessari PSYCHO BITCH FROM HELL!!!

Kv. Höfundur

Posted at 09:31 pm by saekobitch
Comments (6)  

Monday, January 09, 2006
Matarkaupin

Jæja þá höldum við þessu áfram en sagan í dag kemur frá lesanda sem sendi hana inn á psychobitchfromhell1@hotmail.com. Að venju er nöfnum breytt til verndunar þeirra sem eiga í hlut. Sagan á sér stað í Reykjavik og á í hlut drengur sem er 26 ára og er nafn hans í sögunni "Emil" en stúlkan sem á í hlut er 23 ára og er nafn hennar "Sandra".

"Emil" er strákur í góðri vinnu búinn með háskólamenntun í markaðsfræði en "Sandra" er í HÍ að læra verkfræði. Baksagan er sú að þau hittast einhverju sinni fyrir 2 árum síðan í partýi eftir vísindaferð hjá verkfræðinni. "Emil" var nokkuð brattur á þessum tíma og bauð henni í glas og upp úr því verður mjög gott samband. Allir aðilar í kringum þetta samband ánægðir með þau og sjá fyrir sér gott par sem verður saman.

Síðasta sumar þá breyttist þetta allt saman "Sandra" fékk semsagt ekki þá vinnu sem hún vlidi fá vegna þess að hún var ekki nógu dugleg við að sækja um vinnu. Hún byrjar því sumarið atvinnulaus enda ekki alveg týpan sem fer að vinna á McDonalds. Jæja gott og blessað "Emil" er ekkert að stressa sig á þessu en fer að taka eftir því að "Sandra" er meira og meira að fara fram á að hann sé að lána henni peninga svo hún geti keypt sér föt og aðrar "nauðsynjavorur" Þegar komið er fram í miðjan júli þá tekur hann eftir því að hún er búin að eyða um 90.000kr samtals í alls konar drasl. Hann sest því niður með henni til að ræða aðeins við hana þar sem hún er nú að eyða hans penginum í þetta. Eftir að hafa rætt saman í smá tíma um þetta þá stekkur hún á fætur alveg brjáluð og segir hluti eins og "þú vilt mig greinilega ekki lengur, ég er að kaupa þetta þannig að ég líti vel út fyrir þig, viltu ekki að ég líti vel út" Þetta fær aðeins á hann og hann svarar "jújú þú lítur alltaf vel út en það er óþarfi að vera að kaupa nýja hluti alltaf"

Við þetta rýkur hún út eins og gengur og gerist í rifrildum. "Emil" er ekkert að kippa sér mikið upp við þetta og gerir lítið í málinu. "Sandra" kemur til baka um kvöldið og segir sorry við hann og allt verður í góðu enda ekkert stórmál. Morguninn eftir fer Emil til vinnu en lánar "Söndru" vísa kortið sitt til að hún geti keypt inn í matinn. (nú veit ég að þið hugsið, úff nú gerist eitthvað) og viti menn það gerðist "Sandra" keypti ekki inn í matinn og ekki voru það ný föt sem hún keypti heldur fór hún bara út og þá meina ég út, "Sandra" skellti sér upp á lfugleiði, keypti sér miða til Danmerkur og fór samdægurs til Köpen. Þegar "Emil" kemur heim þá sér hann að ekki hafi verið keypt inn þannig að hann hringir í hana og "Sandra" svarar. "hvar ert þú" segir "Emil" smá reiður, "þú hefur ekkert keypt inn" og svarið sem hann fékk til baka "jújú ég keypti inn, er einmitt hérna í einhverri búð á strikinu að kaupa mér mat" segir hún. "Emil" hló nú ekki dátt en hélt að hún hefði verið að grínast en neinei þá var hún bara ekkert að því. Skellti sér bara til Danmerkur lét vita af sér en sagði "Emil" að þetta samband væri búið og hún ætlaði bara að prófa að fá vinnu þarna úti. "Sandra" hafði þá talað við kunningja þarna úti og fékk að gista þarna úti. "Emil" lokaði að sjálfsögðu kortinu sínu og hefur ekki séð hana síðan.

"Emil" talaði nokkrum sinnum við hana eftir að hún flutti út en það hefur ekki verið oft, "Sandra" fékk víst vinnu að lokum á KFC og lifir víst enn í DK og er búinn að finna einhvern gaur þarna úti. Ég sem höfundur þessarar síðu hef ekki meiri upplýsingar af þessu pari en get ekki orða bundist. HÚN ER PSYCHO BITCH FROM HELL, "Emil" skilaboðin til þín eru bara þau, djöfull ertu heppinn að hafa komist út úr þessu áður en verr fór. Ég ætla að láta þetta gott heita í bili en fleiri sögur munu birtast. Endilega verið dugleg við að láta í ykkur heyra í commentum eða þá á psychobitchfromhell1@hotmail.com

Kv Höfundur

Posted at 03:48 pm by saekobitch
Comments (4)  

Monday, January 02, 2006
Nýtt ár fleiri sögur MÆÐGURNAR

Gott fólk þá er komið að því, Pscyco sögurnar fara aftur í gang eftir smá hlé. Nú eru komnar nýjar sögur í hús bæði frá mér persónulega og svo einnig frá fólki sem segir sögu sína. Ég ætla að byrja á að biðjast fyrirgefningar á því að hafa ekki verið duglegri við þetta en sagan í dag bætir þetta kannski upp enda saga sem þið þurfið að lesa og þá sjáið þið hvað ég á við.

Þessi saga á sér stað 3 vikum fyrir gamlárskvöld núna í hlut á ég og kona sem ég pikkaði upp niðrí bæ eitt laugardagskvöldið ásamt fjölskyldumeðlim hennar. Þannig er mál með vexti að ég fer niður í bæ þetta Laugardagskvöld ásamt vinafólki mínu. Allt er í góðum gír og við byrjum á Ara í Ögri þetta kvöld. Þarna inni er að venju fjölbreytt fólk á öllum aldri er hægt að segja. Jæja ég hafði ekki verið þarna lengi inni þar til að ég fæ auga frá konu þarna á besta aldri 38 ára. Það vill svo til að þarna við borðið er einnig dóttir hennar sem er 20 ára og vinkona hennar á sama aldri held ég.

NÚ ég er ekki nema 25 ára en maður hefur farið um víðan völl og ekki hægt að segja annað en að þarna hafi verið á ferð myndarlegar mæðgur. Nú ég er að spjalla semsagt við dótturina og er að ná nokkuð góðu sambandi við hana, vinkonan alveg við það að drepast og móðirin bara að hlusta á trúbbana. Jæja svo fer dóttirin á WC og hvað gerist, Mamman fer að strjúka á mér lærið og svona reyna að æsa mig upp, spyr mig hvort ég væri til í að fara með henni heim án þess að segja dótturinni nokkuð, mér fannst þetta nú svolítið skrítið en mamma var samt helvíti heit.

En jæja dóttirin kemur aftur og þá er vinkonan alveg búin á því, við það að drepast fram á borðið. Dóttirin ákveður að fara með hana heim því þær áttu bara heima þarna rétt hjá en segir mömmu sinni bara að vera eftir og skemmta sér. Ég vissi ekki alveg hvað hún átti við með því enda talaði hún lítið við mig eftir að hún kom út. Jæja hún fer og mamman fer að tala enn meira við mig og reyna að tæla mig. Ekki það að hún hafi þurft að gera það lengi enda M.I.L.F dauðans. Jæja ég slæ til og fer með henni heim og allt að komast í gírinn svaka stuð þarna í stofunni heima hjá henni þar sem hún bjó bara ein að ég HÉLT.

Við erum semsagt bara að skemmta okkur, komin úr fötunum og allt að gerast. Við færum okkur inn í svefnherbergi þar sem hún var búin að kveikja á kertum og allt svaka kósý. Þegar við vorum búin að vera að í einhvern klukkutíma þá segir hún við mig "heyrðu bíddu aðeins hérna kem eftir smá, ætla að ná í svolítið" jújú ekkert mál þannig að ég leggst aftur á bak með hendur fyrir aftan höfuð. Hún kemur til baka og viti menn hún með trefla því hún vill binda mig niður, jújú ég slæ til enda bara gaman að svona leikjum en þegar hún er að byrja þá viti menn DÓTTIRIN GENGUR INN Í HERBERGIÐ, Á NÆRFÖTUM. Ég hélt að ég yrði ekki eldri og hvað gerir mamman, hún segir "viltu vera með"

Mér fannst þetta svo fyndið að ég byrjaði bara að hlægja en viðbrögð dótturinnar komu mér ennþá meira á óvart hún sagði "já má ég það" ég hélt að ég myndi missa andlitið, mér fannst þetta eiginlega full freaky og sagði við þær að ég gæti þetta bara ekki og fór út. Þær reyndu að tala mig til og sögðu að þær hefðu gert þetta áður og finndist það ekkert skrítið og að ég ætti ekki að hafa áhyggjur, en come on þetta getur verið sexy og magnað að horfa á 2 dömur saman og maður hefur séð my best friends mom og allt það en ég er ekki að grínast þetta var geðsýki að lenda í þessu. Þið segið kannski að ég sé aumingi og allt það og vitiði hvað MÉR GETUR EKKI VERIÐ MEIRA SAMA. Þetta var bara too much. Þetta kalla ég Psycho Bitch From Hell

Jæja þá er fyrsta sagan komin í hús á árinu endilega látið heyra í ykkur, alltaf gaman að fá comment frá ykkur og ég tala nú ekki um e-mail.

Kveðja Höfundur

Posted at 08:57 pm by saekobitch
Comments (16)  

Friday, August 26, 2005
Systurnar

Jæja þar sem rólegt er hjá mér í kvöld þá ákvað ég að skrifa hérna eina litla sögu sem kemur úr persónulegri reynslu. Þetta fjallar um mig og svo stúlku sem ég hitti eitt kvöldið en málið er bara það að það var systir hennar sem var geðveik.

Þetta var semsagt eitt kvöld fyrir ekki margt löngu. Ég skellti mér út með vinahópnum og var stefnan sett á Ara í Ögri. Eftir að hafa setið þarna við drykkju í nokkuð góðan tíma þá fáum við til okkar 4 stelpur sem sátu á næsta borði. Við ræðum við þær í smá tíma og næ ég góðum contact við stúlku kind þarna sem ég ætla að kalla "Svönu"

Svana var þessi hressa og skemmtilega stelpa sem kunni sko að skemmta sér, hún gat drukkið mikið án þess að verða eitthvað ofurölvi og sú kunni að dansa. Þannig var mál með vexti að ég og hún stungum hin af og skelltum okkur á dansgólfið á Pravda. Eftir að hafa dansað í smá tíma förum við á barinn og pantar daman ekki bara sterkasta skot sem þeir áttu, eitthvað 50% dæmi og það var ekki bara eitt heldur 3 ég gat nú ekki verið minni maður og fékk mér eins.

Þarna sitjum við og tökum þessi skot bara í rólegheitum og erum að spjalla, allt í einu gengur til hennar stúlka sem er óheyrilega lík henni enda ekki nema von, þetta var tvíburasystirin. En jæja hún var nú ekki lengi hjá okkur heldur sagði okkur bara að hitta sig á dansgólfinu. En jæja eftir að hafa klárað þessi 3 staup þá lá leið okkar ekki á dansgólfið heldur heim til hennar.

Ég veit hvað þið eruð að hugsa með ykkur núna "damn hann hefur sennilega tekið eitthvað í systurina" en nei það var sko ekki.

Jæja við erum þarna heima hjá henni og vissulega var það gaman og gott, svo eftir nokkurn tíma þá erum við bara að spjalla og mér finnst ég bara vera að ná heldur vel við þessa dömu. Hress stelpa opin og í lögfræði. Þannig að ég sá bara fyrir mér, "hey þetta gæti bara verið vert að skoða betur" Eftir að hafa legið þarna og talað saman í einhvern 1 og hálfan tíma (skil ekki alveg hvernig ég fór að því) þá þarf ég að fara á klósettið. Ég spyr því til vegar og hún segir "út ganginn framhjá næsta herbergi og inn til vinstri" jújú ég skelli mér af stað og létti á mér en svo á leið fram þá fer ég inn í eldhús og ætla að fá mér vatn að drekka. Það varð til þess að ég þurfti að hlaupa út nakinn.

Málið var það að þegar ég geng fram þá situr inn í stofu þessi stelpa og ég segi eitthvað hva bara komin hingað, hún er greinilega ekki alveg með öllu mjalla því hún snýr sér við, sér mig nakinn og eypar gjörsamlega, (vissulega ekki skrítið enda ekki á hverjum degi sem nakinn gaur heilsar upp á þig) en hún semsagt stekkur á fætur grýtir í mig símanum sínum og strax á eftir kom stofu skál sem var á borðinu. Ég stekk af stað inn í forstofu enda það næsta herbergi við mig en hvað gerir hún, hún kom bara hlaupandi á eftir mér grípur í járnstöng hjá arninum og ber í hurðina, næsta sem ég veit erð að ég er kominn út og hún kominn í hurðina og hendir á eftir mér járnstönginni sem by the way var með einhverjum oddi á sem stakst í lærið á mér, ekki djúpt en samt vont.

Ég var nú ekkert að hafa fyrir því að ná í fötin mín, enda bara stutt í heimahúsið mitt en ég er margbúinn að fara í gegnum þetta í hausnum á mér og það er nokkuð ljóst að ég myndi ekki fyrir mitt litla líf koma nálægt þessum stelpum aftur, enda tvíburar oft jafn klikkaðir. Ég ætla samt ekki að dæma Svönu enda var það ekki hún sem snappaði en það er nokkuð ljóst að systirin kemst í þennan flokk PSYCHO BITCH FROM HELL

Kv Höfundur

Posted at 11:01 pm by saekobitch
Comment (1)  

Monday, August 22, 2005
Geðsýki á háu stigi.

Jæja gott fólk, ég er mættur aftur og nú fylgja mér þó nokkrar sögur sem ég hef fengið sendar í þessu litla fríi sem ég tók mér. Markmiðið er að setja inn sögur á Sunnudagskvöldum en það gæti komið upp sú staða að hún komið aðeins seinna ef ég er ekki upplagður. Örlítil breyting verður á því nú er kvennfólki velkomið að senda mér sögurnar sínar líka en sagan í kvöld er einmitt komin frá kvennmanni.

Nafn síðunar mun ekki breytast enda tel ég að stelpur séu ennþá verri heldur enn karlmenn í geðsýkinni og tjáningum.

Sagan í kvöld er um ungan dreng "Stefán" og stelpu sem við ætlum að kalla "Kollu" Þessa sögu fékk ég semsagt senda á Póstinn hjá mér psychobitchfromhell1@hotmail.com en hér kemur hún.

Sagan fjallar semsagt um "Stefán" sem er drengur sem heillaðist að stúlku sem við köllum "Kollu" Staðan var sú að "Stefáni" leist svona svaka vel á hana Kollu og ákvað að biðja hana um númerið hennar, Kolla var nú bara sátt með ljóshærða strákinn og ákvað bara að slá til.

Þau voru búin að þekkjast í viku þegar þau byrja saman! Hann í rauninni tók þá ákvörðun þegar að Kolla hélt að þau væru bara eitthvað að dúlla sér en henni fannst hann nú svo sætur, og hann sagði við hana að hún væri fyrsta stelpan sem hann hafi nokkurn tímann orðið hrifinn af og væri til í að vera í sambandi með!

Þegar að þau voru búin að vera saman í nokkra daga sagði hann henni að hann elskaði hann. Kolla fékk nú vægt hjartaáfall og hélt að Stefán kallinn væri bara eitthvað að missa sig! En neij, hann hélt áfram að segja henni að hann elskaði hann og fyrir rest þá sagði hún bara fuck it! Þetta er sætur strákur og ég er alveg til í að gefa þessu séns!

Svo kom það að Stefán þurfti að fara til útlanda í fótbolta ferð. Þá fékk Kolla okkar tíma til að hugsa og áttaði sig á því að hún væri að vera voðalega eigingjörn að vera með gaur sem hún var ekki einu sinni hrifin af! Svo hún ákvað að hringja í Stefán og slíta sambandinu! Fannst það nú ekkert það illa gert þar sem það var stutt liðið af sambandi og það gæti bara hreinlega ekki verið að hann myndi taka það eitthvað svakalega nærri sér!

Annað kom nú í ljós, drengurinn missti sig hreinlega yfir píuna og öskraði og öskraði á hana! Sagði svo að ef að þetta samband væri búið þá myndi hann aldrei tala við hana aftur, þetta væri ekkert ,,verum vinir" aðstaða! Þá leið Kollu mjög illa og sá að hún hafði sært hann Stefán, þannig að hún dróg sig í land og ákvað að gefa þessu samband einn séns enn! Viku eftir þetta þá hefur Stefán skroppið til akureyrar um verslunarmannhelgina en Kolla var í bænum að vinna. Hann kemur heim en hefur ekkert fyrir því að hringja í Kollu, Kolla sem er þá orðin spennt yfir að láta reyna á þetta samband verður pínu sár og hringir í hann, þá segir hann bara að hann viti ekki hvert þetta samband stefnir og hann sé alveg sjúklega hrifinn af henni Kollu en hann sé bara ekki tilbúinn í samband. En segist samt vilja vera vinir! :D

Þá verður Kolla pínu sár og tekur 3 daga sorgunarferli á þetta, með drykkju með vinkonunum! Svo fer Kolla út í vinnuferð og þegar að hún kemur aftur, viku seinna þá millilendir hún í Stokkhólmi og ákveður þá að kíkja á bloggið sitt, spennt að sjá yfior hverjir eru búnir að commenta um hvað þeir söknuðu hennar! Það eru nokkrar færslur um það en svo kemur bara nafnlausir aðilar segjandi að hún sé drusla og að Stefán skammist sín fyrir að hafa verið með henni, og að hann hafi aldrei verið hrifinn af henni og svo framvegis. Fullt af commentum sem áttu að rakka hana niður.

Hún lendir svo á Keflavíkurflugvelli hress með að vera komin heim og kveikir á símanum sínum í von um vera komin með skemmtileg sms og talhólfskveðjur, hrynja þá ekki sms-in um að hún sé ekki þess virði að labba á þessari jörðu og henni væri vorkunn fyrir hvað hún sé þroskaheft! og talhólfskveðjur sem segja það sama!

Henni bregður náttúrúlega frekar mikið en þá hringir vinkona hennar í hana og segir henni að Stefán hafi haldið framhjá henni þegar að þau voru saman. Kolla er orðin þreytt á þessu rugli og er í rauninni bara slétt sama. Trúir ekki uppá sjálfa sig að hafa trúð öllu bullshitinu sem kom útúr kjaftinum á drengnum og tekur þetta ekkert inná sig.

En maður spyr sig hvaða þroskahefu hálfvitar myndu fara rakka hana niður því að Stefán hélt frammhjá henni og hætti svo með henni.... ?

Svo á menningarnótt lennti hún á fylleríi með vinum hans Stefáns sem sögðu henni að hann hafði sagt þeim að gera henni þetta. Senda þessi sms og tala inná talhólfið og commenta á bloggið hennar! Enn þann dag í dag er fólk að commenta á bloggið hennar og hún hringdi í vin Stefáns og spurði hvað væri eiginlega málið og þeir sögðu að Stefán félagi þeirra væri að þessu!

Hvað er að sumu fólki ?


Jæja nú ætla ég að tjá mig sjálfur um þetta, ég verð að segja fyrir það fyrsta þessi Stefán er náttúrulega bara Psycho Gaur frá helvíti, þetta eru náttúrulega hlutir sem ekki á að gera. En ég verð nú að segja að Kolla stígur nú ekki mikið í vitið sjálf hún fellur alveg fyrir öllum slízý línum hans og alltaf segir hún "jájá ég gef þessu séns" hún er fyrsta stelpan sem hann fellur fyrir og whalla hann er búinn að ná í hana, þetta verður ekkert "verum bara vinir" samband og whalla hún er snúinn aftur til hans. Ég bara skil ekki stelpur eins og þessa en svona er nú lífið skemmtilegt.

Ég ætla hér með að útnefna Stefán fyrsta PSYCHO DUDE FROM HELL þetta er bara ekki hægt. Kolla, hún fær ekki þessa viðurkenningu en ég ætla að útnefna hana bara Psycho fyrir að láta fara svona með sig, því þú þarft að vera Psycho á að falla alltaf aftur og aftur fyrir svona.

kv Höfundur

Posted at 08:06 pm by saekobitch
Comments (2)  

Wednesday, June 29, 2005
Hver anskotinn gengur að þér!!!

Jæja eftir örlitla pásu þá ætla ég segja ykkur frá pari sem ég þekki eða öllur sagt þekkti. Við erum að tala um góðan félaga minn og stelpu sem hann var með fyrir 2 árum síðan. Félagi minn er nokkuð nettur gaur, hefur gaman að lífinu og ávallt hress í skapi. Hann er nokkuð góður djammari og á það til að vera svona smá daðrari þegar hann er í glasi. Nú daman sem hann var með á þessum tíma var svona svipuð týpa og hann nema það að hún var ekki mikill djammari.

Þau kynntust fyrir 5 árum síðan og var þetta svona par sem maður hélt að myndi endast alla lífstíð hjá þeim. Þau virtust alltaf vera hamingjusöm og hann talaði aldrei um að það hefðu komið hnökrar hjá þeim en oft er það ekki nema einn hlutur sem getur splittað upp góðu sambandi. Okkar maður við skulum kalla hann "Ara" og daman "Sigrún" voru eitt sinn með okkur vinahópnum út að borða því einn í hópnum átti svokallað stórafmæli. haldið var á góðan veitngarstað og var hópurinn þar fram eftir kvöldi við drykkju og át. Þegar komið er að því að fara í bæinn þá tekur "Sigrún" eftir því að "Ari" er að borga við afgreiðsluna og sér að daman er eitthvað að brosa til hans og hlær síðan eitthvað smá. Hún segir nú ekkert við þessu en þetta sest eitthvað á hana.

Haldið var á Hverfisbarinn þar sem við settumst inn og byrjar "Ari" á því að fara á barinn og kaupa umgang á hópinn við mikinn fögnuð hjá okkur strákunum enda aðeins komnir í glas. Enn og aftur tekur "Sigrún" eftir því að hann er eitthvað að daðra við stelpuna sem er að afgreiða hann og í þetta skiptið fer hún til hans og kyssir hann á kinn og hjálpar honum að koma bjórnum á borðið, svona eins og til að láta vita "ég á hann". Við fórum að taka eftir þessu og hlóum aðeins að þessu.

Þegar líða tekur á kvöldið þá koma fleiri vinir okkar á staðinn og fólk er að dansa eins og það ætti lífið að leysa. Skötuhjúin eru nú ekki mikið saman að dansa þar sem hún var með vinkonum sínum við borð að tala en okkar maður er að dansa semsagt við eina vinkonuna í hópnum og ekkert að gerast annað en að hann snéri henni eitthvað í hringi og svoleiðis ekkert alvarlegt. Allt í einu, upp úr þurru æðir "Sigrún" í hann, stekkur á milli og hrindir vinkonunni um koll og eypar eitthvað á "Ara" og hann verður nú ekkert sáttur við framgang hennar og öskrar á hana "hver anskotinn gengur að þér stelpa" og við svona förum inn í þetta til að róa þau niður því fólk var farið að horfa nokkuð á þau.

Jæja þau róa sig niður og ræða málin í smá tíma og við höldum svo áfram bara að skemmta okkur og núna erum við bara strákarnir á dansgólfinu eins og algjörir fávitar og hvað gerist jújú hún "Sigrún" kemur vaðandi inn í hópinn og "bitch slappar" "Ara" . Við að sjálfsögðu hlógum okkur máttlausa vegna þess hvernig svipur kom á hann en hún rauk út án þess að segja nokkuð. "Ari" var í smá tíma að átta sig en fór svo á eftir henni en hún var hvergi sjáanleg. Hann hringdi en ekkert svar þannig að hann kom bara til okkar aftur og sagði að hún myndi róa sig þetta hlyti að vera áfengið í henni. Þegar við komum svo út klukkan 6 og ætlum að fara að bílnum enda með einn góðan sem drekkur ekki. Þá var búið að "lykla" bílinn hans "Ara" og var heldur illa farið með bílinn. Okkur datt að sjálfsögðu í hug daman strax en vildum ekki segja neitt en "Ari" var alveg brjálaðu.

Morguninn eftir hringdi Ari í mig og sagði mér að "Sigrún" hefði gert þetta við bílinn og ég spurði hann hversvegna en hann hafði engin svör önnur en þau að hún væri bara klikkuð. Hún hringdi semsagt í hann og sagði að hann væri ógeðslegur og ætti ekki neitt gott skilið og því ætti hann hana ekki skilið.

Ég verð nú að segja sem maður sem sá þetta allt saman að manneskjan er PSYCHO BITCH FROM HELL því "Ari" gerði ekkert af sér annað en að skemmta sér með vinum og vitum við ekki enn í dag hvað olli því að hún tapaði sér svona.

Kveðja
Höfundur

Posted at 03:55 pm by saekobitch
Comments (5)  

Wednesday, June 01, 2005
Minnistap eða klikkun

Oft hefur verið talað um að strákar séu sérstakir þegar það kemur að því að segja stelpum upp, maður hefur heyrt dæmi um að þeir hætti bara að hringja og segja svo að hún hefði bara átt að fatta þetta eða þá að senda sms en það sem kemur fram í þessari nýju sögu sem ég fékk senda til mín á PSYCHOBITCHFROMHELL1@HOTMAIL.COM er gjörsamlega út í hött. Ég hef aldrei heyrt annað eins og svo er bara að sjá hvað þið segið við þessu.

Hér erum við að tala um stelpu sem við ætlum að kalla Svönu og svo dreng sem ég mun kalla Jóa. Svana er bara þessi ósköp venjulega stelpa sem er að vinna við skrifstofustörf hjá fyrirtæki hér í bæ en Jói er að læra hagfræði í HÍ. Hann er þessi félagsvera og fer nokkuð mikið að djamma á meðan hún er mjög hljóðlát stelpa og mikið fyrir að slaka á heima.

Sá sem sendi mér þessa sögu segir að þetta samband hefði aldrei átt eftir að ná langt þar sem þau voru svo gjörsamlega ólíkar persónur og var alltaf mjög sérstakt andrúmsloft í kringum þau. En öllum að óvörum náðu þau að halda saman í rétt tæpt ár. En hér kemur sagan sem er í styttri kanntinum.

Það var Fimmtudagskvöld og vinir Jóa ákváðu að fara út í pool og þegar hann sagði þeim að hann gæti ekki komið með því það var eitthvað bögg í sambandinu hjá honum og Svönu þá hlógu bara strákarnir og sögðu "gaur ekki vera svona erfiður maður, ætlar þú að láta hana alltaf stjórna þér" hann vildi nú ekki segja þeim almennilega hvað málið væri en sagði þeim bara að hann kæmist ekki. En svo kom laugardagskvöld og það eru allir heima hjá Jóa og gott party í gangi. Allir virðast vera að skemmta sér vel þangað til að allt í einu heyrist útidyrahurðin skellast og Jói spyr "hvar er Svana??" Fólkið lítur í kringum sig en enginn veit neitt. Jói stekkur þá yfir sófann og út um hurðina og sér þá bara bílinn sinn keyra í burtu. Hann kemur inn aftur og reynir að hringja í hana en ekkert svar. Fólkið fer þá að spyrja hann hvort ekki sé allt í lagi og hann segir, "ég veit það bara ekki, hún gerði þetta líka á fimmtudag en þá náði ég að stoppa hana og allt var í lagi, en þá vorum við búin að rífast líka eitthvað þannig að ég skildi alveg afhverju hún þaut út".

Þegar hérna var komið þá hafði ekkert verið að gerast þarna, engin leiðindi eða neitt svoleiðis. Jói var með smá áhyggjur en svo eftir að hafa rætt við félaga sína þá hélt hann áfram að djamma bara því hann vildi ekki láta skapið í henni eyðileggja kvöldið. Hart já en eins og maður segir þá eru stelpur stundum erfiðar.

Daginn eftir hringir hann heim til Svönu þar sem hann bjóst við að hún væri bara en þá var sagt að hún væri bara farin út. Enn og aftur reynir hann að ná í hana en ekkert gengur og svona var það í heila viku, náði engu sambandi við hana. Hann fór heim til hennar en hún var aldrei heima. Svo næstu helgi þegar hann var orðinn frekar pirraður út í hana þá fór hann út með félögum sínum og hvað gerist jú hann sér að þarna er Svana að djamma með einhverjum gaur og fær það nokkuð á hann, hann fer til þess að ræða við hana "hæ Svana, afhverju hefur þú ekkert svarað mér???" og hún segir "uuuu hver ert þú??. á ég að þekkja þig?" Hann fékk bara sjokk og vissi ekki alveg hvernig hann átti að bregðast við en segir "haaaaa já við erum búin að vera saman í 10 mánuði, ertu eitthvað klikkuð??" og hún svarar með hörku "NEI ÞAÐ ER ÉG EKKI, ÉG ÞEKKI ÞIG EKKERT!!" Jói hló nú bara að henni og fór í burtu en var samt ekkert sáttur við þetta en komst yfir þetta að lokum.

Ég veit ekki með ykkur en þetta er rosalegasta dump sem ég hef heyrt um og ákvað að setja hana hérna inn sem PSYCHO BITCH FROM HELL. Jói hefur ekkert heyrt í henni eftir þetta og verð ég að vera sammála félaga hans að það er nú bara gott

Höfundur

Posted at 12:35 am by saekobitch
Comments (7)  

Thursday, May 26, 2005
Geðsjúka Stelpa

Jæja ég hef nú ekki staðið við það að setja inn sögu á sunnudögum en hér kemur ein sem er all svakaleg, þetta er saga um gaur sem ég þekki og hvað hann lennti í með einni dömu. Þessi saga fer fram í bæ út á landi.

Hér erum við semsagt með gaur sem hittir stelpu á þessum stað, þau kynnast aðeins og upp úr þeirra samskiptum verða ágæt kynni, þar sem fram kemur að ekkert samband sé á leiðinni í augnablikinu heldur aðeins góðir tímar. Á þessum tíma hittast þau 2 sinnum ásamt því að tala mikið saman. Jæja hún fer að verða svolítið pirrandi við hann þar sem hún vill að þetta verði að sambandi en hann er ekki tilbúinn í það og segir henni það hreint og beint. Hún samþykkir það alltaf en talar samt oft um þetta.

Eitt kvöldið á djamminu þá er hann úti að djamma með félaga sínum og eru þeir báðir í góðum fíling félaginn er semsagt eitthvað að hössla og okkar dama er á eftir gaurnum, þá kemur önnur dama inn í málið og er líka á eftir gaurnum okkar og eru þær báðar nokkuð pirrandi. Þegar tekur að líða á kvöldið verður okkar maður nokkuð pirraður á þeim og lætur þær báðar vita að hann hafi ekki í hyggju að fara með þeim heim á nokkurn hátt, hann fær þá framan í sig frá okkar klikkuðu dömu að hann geti ekki farið svona með stelpur og vinkonur hennar líka að bögga hann. Hann segir allan tíman að hann hafi ávallt komið fram við hana með sannleika í huga og sagt henni hlutina eins og þeir eru, eftir að hafa rifist við þær í smá tíma þá sannfærast vinkonur hennar og segja henni að slaka á, ekki vill hún það og æsir sig mikið.

Þetta kvöld fara þeir félagar í eftirparty ef kalla má en eftir smá tíma fer félagi gaursins heim með dömunni, en okkar maður fékk að gista á sófanum hjá vini sínum. Síminn stoppaði ekki alla nóttina því geðsjúka stelpan heldur áfram að hringja og hringja alveg að tapa sér og kemur að því að okkar maður slekkur bara á símanum.

Jæja þá skulum við aðeins fara heim til okkar manns þar sem félaginn var með sína dömu, rétt eftir að þau komu heim þá er ráðist á hurðina fyrir utan og barið á hana eins og villt dýr, félaginn fer til dyra og hver stendur þá þar, jújú okkar geðsjúka stelpa, hún heimtar að fá að hitta gaurinn sem er ekki heima og hættir ekki að öskra fyrr en hún fær að koma inn í íbúðina til að leita að honum!!!! hún leitar og leitar, fer meira að segja inn í skápa til að gá hvort hann sé að fela sig. Eftir að hún sannfærist fer hún út.

Helgina eftir er okkar maður aftur úti og verður þá aftur vitni að því að manneskjan sé geðveik. Þarna er hann bara rólegur á barnum þegar hann heyrir allt í einu brjáluð læti fyrir aftan sig, hann snýr sér við og þá sér hann 2 stelpur vera að slást og hver önnur en okkar manneskja er ein af þeim, og eftir að hafa spurst fyrir þá kemst hann að því að hún átti upptökin, ekki er á hreinu hver ástæðan var en stelpan sem hún réðst á var ófrísk!!!!

Og þá snúum við okkur að 3. hluta geðveikinar, okkar maður fékk símhringingu á sunnudagskvöldið þar sem honum var tjáð að vera á varbergi gagnvart símhringingum úr óþekktum númerum, því geðveika stelpan hafði þá talað við ónefnda útvarpsstöð um að gera símahrekk í honum, ekki er vitað hver hrekkurinn á að vera enda ekki búið að hringja í hann en þetta er umtalað í bænum og bíða margir hverjir spenntir eftir þessu. Félagi minn hefur sagt mér það að hann muni snúa þessu dæmi við á hana en nú er bara að bíða og sjá hvað gerist.

Það er nokkuð ljóst að þetta er PSYCHO BITCH FROM HELL eða hvað finnst ykkur, er stundum ekki hægt að ganga of langt!!!!

kveðja Höfundur

Posted at 08:28 am by saekobitch
Comments (8)  

Monday, May 16, 2005
Stelpur verða alltaf erfiðar

Já ég veit ég lofaði sögu inn á sunnudegi og klikkaði en hér kemur samt saga vikunar sem telst vera ein af þessum psychobitchfromhell saga. Við erum með strák og stelpu (kalli og Sigga) Kalli er þessi venjulegi strákur sem er bara að slaka á í lífinu og ekkert að flýta sér að festa sig, Sigga er þessi stelpa sem fellur fyrir strákum við minnsta daður.

Sagan fer fram í Reykjavík og jafnvel að einhverjir þekki til þessara aðstæðna. Eins og oft hérna á íslandi þá kynnast þau á djamminu og verða "vinir" það kvöld.

Kalli fór eitt kvöldið með félögum sínum á Bar í rvk og voru þeir allir að skemmta sér helvíti vel og ölið rann nokkuð hratt niður. Þegar það kemur að Kalla að fara á barinn þá sér hann þarna fyrir innan barinn stelpu sem er að vinna þar, hann gengur upp að barnum og pantar 4 bjóra og er með svona small talk við dömuna. Þegar líður á kvöldið verða ferðir Kalla æ fleiri á barinn til þess að ræða við dömuna, að lokum fær hann kjark og fær númerið hennar. Sigga segir honum það en bætir við að hún sé búin að vinna eftir hálftíma og væri alveg til í að hitta hann þá. Kalli var ekki lengi að samþykkja það enda nokkuð heitur fyrir dömunni.

Kalli hittir Siggu síðan á öðrum bar eftir ca 40 mínútur og ná þau bara helvíti vel saman. Þau fara svo saman heim og "skemmta" sér bara vel saman. Eftir þetta þá hittast þau reglulega og eru bara að "skemmta" sér og er það eina markmið þeirra. Samband er ekki í umræðunni og vilja þau bara halda þessu í bólfélaga sambandi.

5 vikur líða og með mörgum góðum stundum svo kemur laugardagskvöld og Kalli er aftur úti með félögum sínum og þeir fara á barinn til Siggu og vill svo til að hún er að vinna aftur þetta kvöld. Hér vandast málið, Kalli situr með félögum sínum og upp að honum kemur fyrrverandi kærasta og sest í fangið á honum. Kalli er ekkert að kippa sér upp við þetta enda góðir vinir þrátt fyrir að vera hætt saman. Sigga sér þetta og verður síður en svo ánægð og kemur að borðinu og skammast í Kalla fyrir framan alla. Kalli reynir að útskýra málin í rólegheitum en þannig vill til að Sigga vill ekkert heyra það tekur upp fullt glas af bjór og hellir niður á Kalla og hendir glasinu svo í hausinn á honum. Það þarf náttúrulega ekki að spyrja en já hún var rekin á staðnum og send heim með lögreglu enda eigendur ekki sáttir við svona hátterni starfsfólks. Kalli fór nú ekki tómhentur og fékk frá eigandanum spjald sem gilti í 6 mánuði og fékk hann frítt að drekka á staðnum þann tíma. Málinu lauk nú samt ekki á þessum stað. Ekki það að Kalli hafi hitt Siggu aftur en það sem gerðist var þaða að hún var sífellt að hringja í hann og áreita, hann endaði á því að skipta um númer og hefur verið laus við hana síðan þetta gerðist.

En ég bara spyr, afhverju þurfa kvennmenn alltaf að vera svona erfiðir, þarna erum við með dreng sem kom alveg hreint fram við hana reyndi að útskýra stöðuna þegar (X) var þarna en stelpan tapaði sér bara. Ég set þessa dömu í flokkinn Psycho bitch from hell því mér finnst hún eigi heima þarna, hún er kannski ekki sú versta en á þrátt fyrir það heima þarna.

Kv Höfundur

Posted at 08:55 pm by saekobitch
Comment (1)  

Next Page
Segid ykkar sogu med tvi ad senda mail a

psychobitchfromhell1@hotmail.com




endilega sendid ykkar sogu a ofangreint mail


Nýjar sogur koma inn í hverri viku

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed